Gengi hlutabréfa Icelandair Group féll um 2,14% í Kauphöllinni í dag. Velta með bréfin nam 84 milljónum króna. Skýringin á gengisbreytingunni er sú að félagið greiddi hluthöfum út arð í dag upp á 2.150 milljónir króna.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa fasteignafélagsins Regins um 0,91%, Össurar um 0,78%, Marel um 0,45% og Vodafone um 0,34%. Þá lækkaði gengi bréfa TM um 0,16% og Haga um 0,12%.

Á hinn bóginn hækkaði gengi bréfa N1 um 0,82%, Eimskips um 0,22% og VÍS um 0,09%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,81% og endaði hún í 1.193 stigum. Hún hefur ekki verið lægri síðan seint í nóvember í fyrra.

Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni var í lægri kantinum. Hún nam 341 milljón króna. Mest voru viðskipti með hlutabréf N1 eða upp á 125 milljónir króna.