Hlutabréf í Icelandair Group hafa hækkað mikið eftir að seinasta árshlutauppgjör kom út. Frá dagslokagengi á miðvikudeginum til lokunar markaða í lok þessarar viku hefur gengi bréfanna hækkað um 5,6 prósent.

Gengi bréfanna hefur því hækkað um rúm 25 prósent á seinustu tólf mánuðum. Virði bréfanna hefur hins vegar hækkað um 372 prósent frá því í ársbyrjun 2012. Hluthafar félagsins geta því unað sáttir við gengi félagsins á seinustu árum.