Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hefur lækkað um 7,4% það sem af er morgni. En gengi hlutabréfa Icelandair Group hafa hríðfallið um 16,29% í 56 milljón króna viðskiptum.

Eina félagið sem hefur hækkað það sem af er morgni er Nýherji  en gengi bréfa þeirra hefur hækkað um 2,11% í 10 milljón króna viðskiptum.