Gengi bréfa Kaupþings [ KAUP ] hafði hækkað um 8,4% um kl. eitt í dag og á sama tíma hafði gengi bréfa finnska tryggingafélagsins Sampo hækkað um 4,4% og gengi bréfa norska tryggingafélagsins Storebrand um 4,6%.

Gengi bréfa Existu [ EXISTA ] hafði á sama tíma aðeins hækkað um 1,9% en félagið er sem kunnugt er stærsti hlutahafinn í bæði Kaupþingi og Sampo og á auk þess stóran hlut í Storebrand