Gengi hlutabréfa Haga lækkaði um 1,5% í 44 milljóna króna veltu í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta lækkun á markaðnum. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Eimskips um 1,18%, fasteignafélagsins Regins um 0,93%, Icelandair Group og Össurar um 0,86%, VÍS um 0,71%, N1 um 0,31% og Sjóvár um 0,17%.

Á hinn bóginn hækkaði gengi bréfa Marel um 0,97% þrátt fyrir 3,3 milljóna sekt FME á hendur félaginu. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Vodafone um 0,32% og HB Granda um 0,18%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,4% og endaði hún í 1.121 stigi. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni var í lægri kantinum í dag eða upp á tæpar 234,5 milljónir króna.