Gengi hlutabréfa Marel hækkaði mest í Kauphöllinni í dag, eða um 1,88% í 176 milljóna króna viðskiptum.

Ekki voru mikil viðskipti með hlutabréf í dag en velta á hlutabréfamarkaði nam tæpum 272 milljónum. Auk Marel þá hækkuðu bréf Vodafone um 1,27% og Icelandair um 0,86%. Gengi bréfa í Regin lækkuðu hins vegar um 0,94% og í Sjóvá um 0,43%.

Úrvalsvísitalan styrktist um 0,64% og endaði í 1.133,36 stigum.