Gengi bréfa Marel hækkaði mest í viðskiptum dagsins í Kauphöllinni, en hækkunin nam 2,63%. Einnig hækkuðu bréf Icelandair um 0,87% og VÍS um 0,74%.

Að öðru leyti var dagurinn rauður í Kauphöllinni. Gengi bréfa HB Granda lækkaði mest eða um 1,43%. Þá lækkuðu bréf Vodafone um 1,15%, Össurar um 0,78%, TM um 0,63%, Sjóvár um 0,33%, Haga um 0,33%, N1 um 0,26% og Eimskips um 0,23%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,54% og stendur nú í 1.147 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam 1.262 milljónum króna.