Gengi hlutabréfa Marel hækkaði um 1,5% í Kauphöllinni í dag.

Á móti lækkaði gengi bréfa fasteignafélagsins Regins 0,78%, gengi bréfa Haga lækkaði um 0,26% og gengi bréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar lækkaði jafn mikið.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,4% í 124,3 milljóna króna viðskiptum og endaði hún í 993,68 stigum.