Gengi hlutabréfa Vodafone hækkaði um 2,38% í Kauphöllinni í dag. Velta með hlutabréfin nam 96 milljónum króna. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Marel um 1,22%, VÍS um 0,47%, Icelandair Group um 0,27% og TM um 0,16%.

Á hinn bóginn lækkaði gengi bréfa N1 um 0,53% og Haga um 0,23%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,38% og endaði hún í 1.258 stigum. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam tæpum 750 milljónum króna. Mesta veltan var sem fyrr með hlutabréf Icelandair Group eða upp á 292 milljónir króna.