Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,35% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.219,23 stigum. Gengi bréfa Marels hækkaði um 1,08%, TM um 0,83% og Regins um 0,68%. Gengi bréfa Icelandair lækkaði um 0,60% og Eimskips um 0,18%. Velta á hlutabréfamarkaði í dag nam 1,1 milljarði króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,06% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,14% en sá óverðtryggði lækkaði um 0,13%. Velta í viðskiptum með bréf í vísitölunni nam 6,9 milljörðum króna og þar af var velta með óverðtryggð bréf 5,3 milljarðar. Velta á skuldabréfamarkaðnum öllum nam 7,7 milljörðum.