Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hækkaði lítillega í dag, eða sem nemur 0,04%. Gengi bréfa Marels hækkaði um 0,67%, en önnur bréf í kauphöllinni annað hvort stóðu í stað eða lækkuðu í verði. Gengi bréfa Haga lækkaði um 0,83%, Icelandair um 0,64% og Fjarskipta um 0,60%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 993,3 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,60% í rétt rúmlega tíu milljarða króna viðskiptum á skuldabréfamarkaði í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,69% og sá óverðtryggði um 0,34%.