Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,07% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.138,24 stigum. Gengi bréfa Marels hækkaði um 0,76%, TM um 0,56% og VÍS um 0,20%. Bréf Haga lækkuðu um 092%, Fjarskipta um 0,58% og Össurar um 0,31%. Velta á hlutabréfamarkaði í dag nam 288,5 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,43% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,62% en sá óverðtryggði lækkaði um 0,06%. Velta í viðskiptum með skuldabréf í vísitölunni nam 12,1 milljarði króna.