Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,45% í dag og endaði í 1.161,91 stigi. Gengi bréfa Marels hækkuðu um 1,1%, TM um 0,74% og Regins um 0,40%. Gengi bréfa Haga lækkaði aftur á móti um 0,62% OG vís UM 0,19%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 667 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,11% í dag. Verðryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,10% og sá óverðtryggði um 0,14%. Velta í viðskiptum með skuldabréf í vísitölunni nam 3,3 milljörðum króna.