Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,76% í dag. Bréf Marels lækkuðu um 1,29%, bréf Icelandair Group lækkuðu um 0,97% og bréf Fjarskipta um 0,43%. Bréf Regins hækkuðu um 0,37% og Eimskips um 0,18%. Velta á hlutabréfamarkaði var óvenjumikil, eða um 2,9 milljarðar króna. Stærstur hluti hennar var vegna sölu Framtakssjóðsins á 19,7% hlut í Fjarskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,13% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,15% og sá óverðtryggði um 0,06%. Heildarvelta með skuldabréf í vísitölunni nam 4,1 milljarði króna.