Gengi bréfa Nýherja hækkaði um 5,17% í viðskiptum dagsins í Kauphöllinni, en almennt hlutafjárútboð fór fram meðal stjórnar- og starfsmanna félagsins dagana 11. til 14. september sl. Útboðsgengi var 3,9 kr. á hlut og fjöldi hluta var 10.000.000 en eftirspurn var eftir 20.145.413 hlutum. Var þetta mesta gengishækkun dagsins í Kauphöllinni.

Gengi bréfa N1 hækkaði um 1,69%, Haga um 0,33% og HB Granda um 0,16%.

Þá lækkaði gengi bréfa Vodafone um 1,22%, Össurar um 0,62%, Regins um 0,33% og Marel um 0,10%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,15% og stendur nú í 1.139 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam 285 milljónum króna.