Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,25% í viðskiptum dagsins í dag. Gengi bréfa Össurar hækkaði um 1,0%, Icelandair hækkaði um 0,57% og Hagar um 0,54%.

Gengi bréfa Marels lækkaði um 0,34% og Eimskips um 0,18%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 1,4 milljarði króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA stóð í stað eftir viðskipti dagsins. Verðtryggði hluti hennar lækkaði um 0,06% en sá óverðtryggði hækkaði um 0,18%.

Velta á skuldabréfamarkaði nam 8,1 milljarði króna, en viðskipti með þau bréf sem eru í GAMMA vísitölunni námu 3,6 milljörðum króna.