Gengi bréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar hækkaði mest í Kauphöllinni í dag, eða um 3,08% í 46 milljóna króna viðskiptum. Það stendur nú í 335 krónum á hlut.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Vodafone um 1,40% og Icelandair um 0,80%. Velta með hlutabréf Icelandair nam 324 milljónum króna og var ekki meiri velta með hlutabréf í neinu öðru félagi.

Þá lækkaði gengi bréfa Granda um 1,65%, Eimskipa um 1,08% og Marels um 0,94%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,07% í dag og endaði í 1.153,29 stigum.