Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar lækkaði um 0,85% í Kauphöllinni í dag. Ekki var mikil velta með hlutabréfin en hún nam 2 milljónum króna. Þetta kemur til viðbótar við 1,27% lækkun á gengi hlutabréfanna í gær.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa VÍS um 0,46%, Marel um 0,37%, TM um 0,16% og Eimskips um 0,10%.

Aðeins gengi hluta Haga hækkaði í dag eða um 0,4%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,10% í dag og endaði hún í 1.241 stigi. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam 435,5 milljónum króna. Mest var veltan með hlutabréf Icelandair Group eða upp á 119 milljónir króna.