Gengi hlutabréfa Össurar hækkaði um 3,39% í Kauphöllinni í dag. Afar lítil viðskipti var með hlutabréfin. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa TM um 1,22%, Marel um 0,92%, Haga um 0,83% og VÍS um 0,66%. Þá hækkaði gengi bréfa Regins um 0,3%, og Sjóvár um 0,15%.

Á sama tíma féll gengi bréfa N1 um 2,25%. Gengi bréfa HB Granda lækkaði um 1,28%, bréf Icelandair Group fór niður um 0,88% og Eimskips um 0,8%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,11% og endaði hún í 1.162 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam 680,8 milljónum króna. Mesta veltan var með hlutabréf HB Granda eða upp á 292 milljónir króna.