Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins hækkaði um 0,85% í tæplega tíu milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Gengið lækkaði nokkuð í gær og snerti útboðsgengi, 8,2 krónur á hlut. Gengið stóð við lokun markaðarins í dag í 8,32 krónum á hlut.

Þá hækkaði gengi bréfa Marel um 0,32%.

Á móti lækkaði gengi bréf Icelandair Group um 1,19%

Úrvalsvísitalan hækkaði um lítillega, um 0,03% og endaði í 1.053 stigum. Öllu meiri velta var á hlutabréfamarkaði í dag en í gær, tæpar 97 milljónir króna í dag samanborið við rúmar 40 milljónir í gær.