Gengi hlutabréfa TM endaði í 26,7 krónum á hlut í lok dags og jafngildir það 32,8% gengishækkun frá útboði. Hæst fór gengi bréfanna í 27,5 krónur á hlut. Heildarvelta með hlutabréfin nam rúmum 1,3 milljörðum króna í 388 viðskiptum.

TM var skráð í Kauphöllina í morgun og var þetta fyrsti viðskiptadagurinn með hlutabréf félagsins.

Sigurður Viðarsson , forstjóri TM, var ánægður með skráningu félagsins á markað og sagði í samtali við VB sjónvarp ferlið hafa gengið vel.