Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,23% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.385,09 stigum. Gengi bréfa Össurar hækkaði um 2,14%, reyndar í litlum viðskiptum, bréfa Haga um 1,44% og Marels um 1,14%.

Gengi bréfa TM lækkaði aftur á móti um 5,81%, Sjóvár um 1,48% og HB Granda um 0,68%.

Velta á hlutabréfamarkaði í dag nam 736,6 milljónum króna og var veltan mest í viðskiptum með bréf TM, eða fyrir 187,2 milljónir króna.