Gengi hlutabréfa tryggingafélagsins VÍS hefur fallið um 2,23% í viðskiptum dagsins á hlutabréfamarkaði. Velta með hlutabréfin nemur 58 milljónum króna.

Gengi hlutabréfa VÍS stendur nú í 9,2 krónum á hlut. Gengi bréfa VÍS fór hæst í apríl í fyrra í 11,51 krónu á hlut. Um miðjan mars, nánar tiltekið 13. þessa mánaðar, stóð gengi bréfa VÍS í 10,38 krónum á hlut. Þetta var arðsákvörðunardagur sem þýddi að skráðir hluthafar VÍS fá greitt í næsta mánuði samtals 1.831 milljón krónur.