Gengi hlutabréfa Vodafone hefur hækkað um 5,61% í Kauphöllinni í dag í kjölfar þess að Greining Íslandsbanka gaf út nýtt virðismat á félaginu í dag. Velta með hlutabréf félags nemur 107 milljónum króna. Greining Íslandsbanka

Gengi hlutabréfa Vodafone stendur nú í 32 krónum á hlut.

Gengi bréfa félagsins féll um 3,5% í gær og sveiflurnar innan sólarhringsins því talsverðar. Á síðastliðnum tólf mánuðum hefur gengi hlutabréfanna hækkað um rúm 17,3% en frá áramótum lækkað um 2,59%.