Gengi hlutabréfa Deutsche Bank hefur lækkað mikið í morgun vegna afkomuviðvörunar sem að bankinn sendi frá sér eftir lokun markaða í gær. Stafar hún af fyrirhuguðum kaupum bankans á Deutsche Postbank. Lækkunin í dag er um 8%. Gengið nú er 41,5 en fór í morgun niður í 40,87.