Í dag lauk lögformlegu sameiningaferli Opinna kerfa og Titan þegar hluthafafundir fyrirtækjanna samþykktu sameiningu. Hjá sameinuðu fyrirtæki eru 140 starfsmenn og er áætluð velta 4,5 milljarðar króna.

Samhliða sameiningunni tekur nýtt skipurit gildi hjá Opnum kerfum.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá Opnum kerfum. Í nýju skipuriti má finna fjögur tekjusvið. Þessi svið eru kerfislausnir, rekstrarlausnir, Microsoft lausnir og heildsala.