Þróunin á hlutabréfamarkaði sneri við í dag eftir lækkun í dag. Gengi helmings félaga á Aðalmarkaði hækkaði og hífðu þau Úrvalsvísitölunni upp.

Gengi hlutabréfa Haga hækkaði um 1,68%, gengi bréfa Icelandair Group fór upp um 1,41% og Marel hækkaði um 1,37%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,81% og endaði vísitalan í 1.27 stigum í lok dags. Til samanburðar lækkaði hún um 1,87% á rauðum degi á hlutabréfamarkaði í gær.