Gengi hlutabréfa Haga-samstæðunnar hækkaði um 0,26% í rúmlega 43 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Gengið hækkaði stendur í 19,4 krónum á hlut og hefur það ekki verið hærra.

Þá hækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,14% í fremur litlum viðskiptum.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Marel um 0,37% í aðeins 323 þúsund króna viðskiptum.

Úrvalsvísitalan lækkaði örlítið, um 0,01%, og endaði vísitalan í 993,38 stigum. Heildarvelta í Kauphöllinni með hlutabréf nam rétt rúmum 56,4 milljónum króna.