Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar lækkaði um 1,5% í fremur litlum viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Þá lækkaði gengi bréfa Haga-samstæðunnar um 1,29%, gengi bréfa Marel fór niður um 0,74% og Icelandair Group um0,56%.

Ekkert félag hækkaði í verði í dag.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,89% í tæplega 280 milljóna króna veltu á hlutabréfamarkaði. Vísitalan fór við það undir upphafsgildið, 1.000 stig, og endaði í 999,99 stigum.