Gengi hlutabréfa Nýherja hefur lækkað um 14,98 prósentustig þegar þetta er ritað. Velta með bréf félagsins er 147 milljónir.

Nýherji er ekki eina félagið á markaði sem hefur farið illa úti það sem af er degi, en gengi hlutabréfa N1 hefur lækkað um 11,83% þegar þetta er ritað.

Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,25% það sem af er degi.