Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar féll um 3,29% í viðskiptum upp á 35 milljónir króna í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Haga um 1,07% og Marel um 0,31%.

Hlutabréf Icelandair Group voru þau einu sem hækkuðu í verði eða eða 0,31%

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,24% og endaði hún í 1.077,76 stigum. Hæst fór hún í rúm 1.090 stig í síðustu viku.

Heildarveltan á hlutabréfamarkaði nam tæpum 60,2 milljónum króna.