Gengi hlutabréfa í kauphöllinni í Zabreb náði methæðum á föstudaginn, sem rekja má til baráttunnar um króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva, segir í frétt króatísku fréttaveitunnar SeeNews.

Actavis hefur gert formlegt tilboð í Pliva að virði 795 króatískar kúnur á hlut, en tilboð bandaríska keppinautarins Barr Pharmaceuticals nemur 755 kúnum á hlut. Kauptilboð Actavis samsvarar um 175 milljörðum króna.

Úrvalsvísitalan í Zagreb, sem inniheldur 23 stærstu skráðu fyrirtækin, hækkaði um ,057% í 3.117,1 stig, sem er hæsta stig sem vísitalan hefur endað í frá upphafi.

Gengi hlutabréfa Pliva hækkaði um 0,61% og endaði hluturinn í 829 kúnum, en gengið hefur aldrei verið hærra. Sérfræðingar spá því að gengið geti hækkað í 850 kúnur hluturinn og að samkeppni Actavis og Barr um að kaupa fyrirtækið eigi eftir að harðna.

Barr sagði eftir að Actavis birti formlegt tilboð sitt á fimmtudaginn að fyrirtækið myndi svara þann 8. september. Búist er við að Barr muni ákveða að hækka kauptilboð sitt.