Gengi bréfa Icelandair Group lækkaði nokkuð í dag, eða um 4,1% í umtalsverðum viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Velta með bréf í félaginu nam rúmlega 212 milljónum króna.

OMXI6 vísitalan lækkaði um 0,3% í dag en velta með hlutabréf nam um 3,6 milljörðum króna. Þar munaði mestu um veltu með bréf Össurar sem nam rúmlega 3,3 milljörðum króna.

Við lok markaða í dag nam gengi bréfa Icelandair Group 5,4. Við opnun markaða á miðvikudag, daginn sem félagið birti uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung þessa árs var gengi bréfanna rúmlega 5,8. Bréfin lækkuðu þó í gær og aftur í dag.

Gengi bréfa í Marel lækkuðu einnig í dag, eða um 0,4% í tæplega 70 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa í Össuri hækkuðu um 1,6% en önnur hlutabréf OMXI6 vísitölunnar hreyfðust ekki í dag.