Gengi hlutabréfa Icelandair Group hækkaði um 1,58% í Kauphöllinni í dag í veltu upp á 808 milljónir króna. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Marel um 1,39% og Vodafone um 1,18%. Þá hækkaði gengi bréfa VÍS um 0,95%, N1 um 0,8% og Haga um 0,47%.

Hins vegar lækkaði gengi bréfa Eimskips um 0,4%, TM um 0,32% og Regins um 0,16%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,9% og endaði hún í rúmum 1.278 stigum. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði Kauphallarinnar nam rétt tæpum 1,7 milljörðum króna.