Gengi hlutabréfa Icelandair Group hækkað til skamms tíma í dag um rúmt eitt prósent og fór gengi bréfanna tímabundið í 12,24 krónur á hlut. Það Hafði þá ekki verið hærra síðan fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins lauk haustið 2010. Þá stóð gengið um stund í 3,5 krónum á hlut og hefur það hækkað um 250%

Fyrir ári stóð gengi hlutabréfa Icelandair Group í rétt rúmum 6,3 krónum á hlut og hafði það hækkað um 92%.

Hækkunin í morgun gekk lítillega til baka eftir því sem á leið daginn og stendur gengið þegar þetta er skrifað í 12,14 krónum á hlut. Það er engu að síður meira en 90% hækkun á einu ári.