OMXI10 úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq á Íslandi stóð í stað í viðskiptum dagsins og nam gengi hennar 2.153,15 krónum í lok viðskiptadags. Heildarvelta viðskipta dagsins nam 3,2 milljörðum króna.

Gengi hlutabréfa Arion banka hækkaði mest í viðskiptum dagsins, eða um 2,11% í 629 milljóna króna veltu. Næst mest hækkaði gengi bréfa Marel, eða um 0,96% í 765 milljóna króna veltu.

Hlutabréf Icelandair lækkuðu langsamlega mest í viðskiptum dagsins, eða um 6,35% í 337 milljóna króna veltu. Næst mest lækkaði gengi hlutabréfa Haga, eða um 2,73% í 74 milljóna króna veltu.