Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,94% í dag og endaði í 1869,55 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 0,58% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Eikar, eða um 0,23% í viðskiptum sem hljóða upp á 279 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 8,80 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Eimskips, eða um 0,21% í 156 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Eimskips er þá 240 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,83% í viðskiptum sem hljóða upp á 375 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 34,95 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Marel um 1,72% í viðskiptum upp á 317 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 257,5 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 1,8 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 980 milljónir króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,7% í dag í 1,8 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 0,8 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,1 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,8 milljarða viðskiptum.