Gengisvísitalan er nú 159,4 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,1% frá opnun í morgun, en styrkst um 0,6% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,8 stig en var var á föstudaginn 160,4 stig.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 78,6 krónum, Evran í 124,8 krónum og Sterlingspundið í 157,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 77,0 krónum, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,7 krónum.