Gengisvísitala krónunnar endaði í 110,12 stigum í gær og fór rétt undir 110 stig innan dagsins. Krónan hefur nú ekki verið sterkari síðan í júní 2000. "Mikill munur innlendra og erlendra skammtímavaxta og væntingar um að hann muni aukast enn á næstu mánuðum samhliða frekari vaxtahækkunum Seðlabankans er það sem stuðlað hefur að hækkun gengis krónunnar að undanförnu," segir í Morgunkorni Íslandsbanka.

Gengi krónunnar er ein skjótfarnasta og virkasta leið peningastefnunnar að verðbólgunni í landinu. Reikna má með að gengishækkun krónunnar undanfarið muni skila sér inn í neysluverð á næstu vikum og mánuðum og að samhliða muni draga nokkuð hratt úr verðbólgunni.