Gengi krónunnar hækkaði um 0,14% í dag í litlum viðskiptum. Gengisvístalan sveiflaðist á bilinu 110,80 til 111,15 en gengisvísitalan hefur verið að sveiflast á mjög þröngu bili síðustu daga. Gengisvísitala krónunnar byrjaði í 110,95 og endaði í 110,80 í 1,5 milljarða viðskiptum á millibankamarkaði með gjaldeyri.