Gengi krónunnar hefur hækkað um tæplega 0,5% nú í morgun og hefur hún þá hækkað um 3,3% á einni viku. "Má ætla að stór hluti af þessari hækkun sé tilkomin vegna skuldabréfaútgáfu erlendis en fjárfestar eiga að greiða bréf fyrir alls 15,5 ma.kr. í þessari og næstu viku," segir í Morgunkorni Íslandsbanka.