Gengi íslensku krónunnar styrktist um 2,4% í síðasta mánuði og er samanlögð styrking frá áramótum því orðin 9,8% við lok mánaðar. Þetta kemur fram í Morgunpósti IFS greiningar. Þar kemur einnig fram að verðlag hækkaði í mánuðinum um 0,27% sem var í takt við spá IFS sem hafði gert ráð fyrir að verðlag myndi hækka um 0,3%.