Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar féll um 2,7% í 5,6 milljóna króna veltu í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta gengislækkunin á hlutabréfamarkaði í dag. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Haga um 1,39%, Vodafone fór niður um 0,46% og bréf Eimskips um 0,37%.

Á móti hækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,67%, Regins um 0,38% og Marel um 0,34%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,61% og endaði Úrvalsvísitalan í 1.182 stigum í lok dags.