Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar féll um rétt rúm 3% í Kauphöllinni í dag. Fyrirtækið skilaði uppgjöri fyrr í dag vegna fyrsta ársfjórðungs en það einkenndist af samdrætti.

Á sama tíma hækkaði gengi nær allra félaga í Kauphöllinni. Þar af hækkaði gengi bréfa Marel um 1,03%, Icelandair Group um 0,88%, Haga um 0,71% og Eimskips og Regins hvort um sig um 0,37%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,11% og endaði hún í 1.195 stigum.