Gengi hlutabréfa VÍS hækkaði um 0,93% í Kauphöllinni í dag. Ekki eru mikil viðskipti á bak við gengisþróunina eða fimm milljónir króna. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Marel um 0,37%, Haga um 0,29% og Eimskips um 0,20%.

Gengi hlutabréfa stoðtækjaframleiðandans Össurar lækkaði á sama tíma um 1,17%. Þá lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,82%, Regins um 0,60% og TM um 0,16%.

Heildarvelta með hlutabréf nam rúmum 504 milljónum króna.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,12% og endaði hún í 1.182 stigum.