Gengishagnaður KB banka á fyrsta ársfjórðungi nam 13.505 milljónum kr. og jókst um 99,3% miðað við sama tímabil í fyrra.

Í uppgjöri bankans kemur fram að ástæða þessarar hækkunar er mun hagstæðara markaðsumhverfi á norrænum fjármálamörkuðum en á sama ársfjórðungi í fyrra, auk sölu bankans á öllum eignarhlut sínum í Baugi Group hf.