Hæstiréttur hefur dæmt gengistryggð lán SP fjármögnunar og Lýsingar ólögleg. Þetta kemur fram á fjölmiðlum í dag en dómsuppkvaðning var klukkan 4.

Réttaróvissa hefur ríkt um lögmæti gengistryggðra lána en dómar í málum SP fjármögnunar og Lýsingar fóru á sitthvorn veginn í héraðsdómi.