Gengisvísitalan er nú 181 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis, sem er hæsta markaðsgengi hennar frá upphafi og hefur krónan því veikst um 2,8% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 5,9% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu Gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 180 stig sem er jafnframt hæsta opinbera gengi frá upphafi en var í gær 170,3 stig.

Krónan veiktist um 2,7% seinni part dags í gær eftir að hafa styrkst um morguninn.  Í morgun hefur leiðin hins vegar legið niður á við og hæst varð gengisvísitalan  tæp 183 stig og hafði krónan þá veikst um tæp 4%.

Frá mánudegi til fimmtudags í síðustu viku sló krónan hvert veikingarmetið á fætur öðru og veiktist alla daga vikunnar að föstudegi undanskildum.

Krónan hefur nú veikst um 5,1% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 94,3 krónum, Evran í 139,2 krónum og Sterlingspundið í 174,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 87,3 krónum, japanskt jen í 0,89 krónum og danska krónan í 18,7 krónum.