Gengisvísitalan er nú 158,9 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1,2% frá opnun í morgun og um 0,7% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 159,0 stig en var í gær 160,1 stig.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 79,3 krónum, Evran í 123,8 krónum og Sterlingspundið í 157,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 75,7 krónum, japanskt jen í 0,7 krónum og danska krónan í 16,6 krónum.