Gengisvísitalan er nú 149,8 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og hefur krónan því styrkst um 1% frá lokun markaða í gær en 0,9% frá opinberu gengi í gærdag. Síðast var gengisvísitalan undir 150 stigum þann 11. apríl síðastliðinn.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 150 stig en var í gær 151,2 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 117,7 krónum, Bandaríkjadalur í 73,7 krónum og Sterlingspund í 146,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 73,2 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum